Hífingar

$0.00

13. október 2026 / 13-16

Þegar hífing fer úrskeiðis er yfirleitt röð atvika sem er þess valdandi. Var þyngdin vanáætluð, búnaður ófullnægjandi, merkjagjöfin misskilin eða var það blanda af öllum þessum þáttum? Námskeið um hífingar fjallar þess vegna um mat, skipulag, samskipti og búnað á verkstað þar sem hífingar eiga sér stað.

Á námskeiðinu er farið yfir hvernig hífing er skipulögð og metin og hvernig búnaður er valinn og skoðaður. Hvernig er merkjagjöf og samskiptum háttað öryggissvæðið tryggt allan tímann.  Æfingar með  raunveruleg verkefni úr verkefnabanka HSE Consulting og lifandi umræður. Námskeiðinu lýkur með prófi til að tryggja hæfni og þekkingu á námsefninu.

Á námskeiðinu er farið yfir

  • Skipulag og mat hífingar: þyngd, þyngdarpunktur, lyftigeta og lyftitöflur

  • Mat á hífingu: er hún einföld flókin eða krefst sérstakrar hífingaráætlunar

  • Val, skoðun og aflagning hífingabúnaðar: stroffur, keðjur, lásar, krókar og lyftiaugu

  • Festing byrðar: festingarhorn og hvað gerist við ójafna álagsdreifingu

  • Merkjagjöf og samskipti: handmerki, fjarskipti og hver hefur stjórn

  • Öryggissvæði hífingar: afmörkun og reglan um að byrði fari aldrei yfir fólk

  • Aðstæður sem breyta öllu: vindur, undirlag, skyggni og nálægur búnaður

  • Ábyrgð og hlutverk: stjórnandi hífingar, kranamaður, merkjamaður og verkstjóri

Kennarar HSE consulting hafa áratuga reynslu af ráðgjöf, innleiðingu og rekstri öryggismála og hafa unnið hífingaráætlanir, tekið út hífingabúnað og fylgt eftir atvikum hjá íslenskum og erlendum fyrirtækjum í iðnaði og verklegum rekstri.

Fyrir hverja

Starfsfólk sem tekur þátt í hífingum — kranamenn, merkjamenn og þeir sem festa byrðar — auk verkstjóra sem skipuleggja hífingar og öryggisstjóra sem meta verklagið.

Verð: 49.900 kr.