13. október 2026 / kl. 9-12
Lokað rými er rými þar sem inn- og útgönguleiðir eru takmarkaðar og andrúmsloftið er ekki endilega öruggt. Það sem gerir þessi verk sérstaklega hættuleg er að hættan getur verið ósýnileg, og þegar eitthvað fer úrskeiðis er tíminn til björgunar knappur. Á námskeiðinu er farið yfir allt ferlið.
Undirbúning og leyfisveitingu, mælingu og loftræstingu, hlutverk vaktmanns og björgunaráætlun. Æfingar með raunveruleg verkefni úr verkefnabanka HSE Consulting og lifandi umræður. Námskeiðinu lýkur með prófi til að tryggja hæfni og þekkingu á námsefninu.
Á námskeiðinu er farið yfir
Hvað telst lokað rými og hvernig þau eru skráð og merkt á vinnustaðnum
Hætturnar: súrefnisskortur og -ofgnótt, eitraðar gastegundir, sprengihætta, innfall efnis, hiti og vélrænar hættur
Áhættumat fyrir viðhaldsvinnu í lokuðum rýmum
Leyfisveiting (vinnuleyfi): hvað þarf að liggja fyrir áður en einhver fer inn
Mæling andrúmslofts: hvenær, hvar, hversu oft, og hvað mælitölurnar þýða
Loftræsting, orkustjórnun og einangrun rýmisins áður en vinna hefst
Hlutverk vaktmanns: samskipti við þann sem er inni og skráning
Björgunaráætlun og björgunarbúnaður: hvers vegna aldrei má fara inn til að bjarga án hennar
Frágangur, lokun leyfis og skráning atvika og næstum-atvika
Kennarar HSE consulting hafa áratuga reynslu af ráðgjöf, innleiðingu og rekstri öryggismála og hafa sett upp leyfisveitingarferli og björgunaráætlanir fyrir lokuð rými hjá íslenskum fyrirtækjum í iðnaði, orkuvinnslu og framleiðslu.
Fyrir hverja
Starfsfólk sem fer inn í lokuð rými, vaktmenn, þeir sem gefa út vinnuleyfi, verkstjórar og öryggisstjórar. Námskeiðið hentar einnig vel þeim sem eru að byggja upp leyfisveitingarferli á vinnustaðnum.
Verð: 49.900 kr.
13. október 2026 / 13-16
Þegar hífing fer úrskeiðis er yfirleitt röð atvika sem er þess valdandi. Var þyngdin vanáætluð, búnaður ófullnægjandi, merkjagjöfin misskilin eða var það blanda af öllum þessum þáttum? Námskeið um hífingar fjallar þess vegna um mat, skipulag, samskipti og búnað á verkstað þar sem hífingar eiga sér stað.
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig hífing er skipulögð og metin og hvernig búnaður er valinn og skoðaður. Hvernig er merkjagjöf og samskiptum háttað öryggissvæðið tryggt allan tímann. Æfingar með raunveruleg verkefni úr verkefnabanka HSE Consulting og lifandi umræður. Námskeiðinu lýkur með prófi til að tryggja hæfni og þekkingu á námsefninu.
Á námskeiðinu er farið yfir
Skipulag og mat hífingar: þyngd, þyngdarpunktur, lyftigeta og lyftitöflur
Mat á hífingu: er hún einföld flókin eða krefst sérstakrar hífingaráætlunar
Val, skoðun og aflagning hífingabúnaðar: stroffur, keðjur, lásar, krókar og lyftiaugu
Festing byrðar: festingarhorn og hvað gerist við ójafna álagsdreifingu
Merkjagjöf og samskipti: handmerki, fjarskipti og hver hefur stjórn
Öryggissvæði hífingar: afmörkun og reglan um að byrði fari aldrei yfir fólk
Aðstæður sem breyta öllu: vindur, undirlag, skyggni og nálægur búnaður
Ábyrgð og hlutverk: stjórnandi hífingar, kranamaður, merkjamaður og verkstjóri
Kennarar HSE consulting hafa áratuga reynslu af ráðgjöf, innleiðingu og rekstri öryggismála og hafa unnið hífingaráætlanir, tekið út hífingabúnað og fylgt eftir atvikum hjá íslenskum og erlendum fyrirtækjum í iðnaði og verklegum rekstri.
Fyrir hverja
Starfsfólk sem tekur þátt í hífingum — kranamenn, merkjamenn og þeir sem festa byrðar — auk verkstjóra sem skipuleggja hífingar og öryggisstjóra sem meta verklagið.
Verð: 49.900 kr.
12. október 2026 / 13-16
Alvarleg slys við viðhald og þjónustu þegar óvænt ræsing (orkulosun) á sér stað. Með læsa, merkja, prófa er farið yfir aðferðir við að tryggja öryggi véla og búnaðar áður en vinna hefst. Á námskeiðinu er farið skipulega yfir aðferðafræðina: hvernig orkugjafar eru greindir, einangraðir, læstir, merktir og prófaðir.
Farið er yfir fjöllæsingar sem eru notaðar þegar margir vinna á sama búnaði og hver ber ábyrgð á hverju. Æfingar með raunveruleg verkefni úr verkefnabanka HSE Consulting og lifandi umræður. Námskeiðinu lýkur með prófi til að tryggja hæfni og þekkingu á námsefninu.
Á námskeiðinu er farið yfir
Hvað lög, reglur og staðlar gera kröfu um orkustjórnun
Tegundir orku sem þarf að einangra: rafmagn, þrýstingur, vökvi, gas, hiti, fjöðrun og stöðuorka
LMP-ferlið skref fyrir skref, frá tilkynningu og undirbúningi til afléttingar
Prófunarþrepið: hvernig tryggjum við að orkan sé raunverulega horfin
Læsingar, merkingar, fjöllæsingar
Hlutverk og ábyrgð: hver læsir, hver prófar, hver aflétti — og hver má ekki
Undantekningar og hættulegustu frávikin: „bara stutt viðhald“, vaktaskipti og prófanir í gangi
Kennarar HSE consultant hafa áratuga reynslu af ráðgjöf, innleiðingu og rekstri öryggismála og hafa byggt upp LMP-verklag frá grunni hjá íslenskum framleiðslu- og orkufyrirtækjum. Þeir þekkja bæði kröfurnar og það sem stendur oftast í vegi fyrir því að ferlinu sé fylgt.
Fyrir hverja
Starfsfólk í viðhaldi og þjónustu búnaðar s.s. vél- og rafvirkjar, verkstjórar, framleiðslustjórar og öryggisstjórar á vinnustöðum þar sem búnaður getur farið óvænt í gang eða losað orku.
Verð: 49.900 kr.
12. október 2026/ 9-12
Fall er ein algengasta orsök alvarlegra vinnuslysa á Íslandi. Á námskeiðinu er farið yfir hvernig fallhætta er greind áður en vinna hefst, hvernig réttur búnaður er valinn og notaður, og hvernig vinnusvæði er tryggt frá upphafi til frágangs. Áhersla lögð á efni sem þátttakendur geta strax byrjað að tileinka sér.
Æfingar með raunveruleg verkefni úr verkefnabanka HSE Consulting og lifandi umræður. Námskeiðinu lýkur með prófi til að tryggja hæfni og þekkingu á námsefninu.
Á námskeiðinu er farið yfir
Hvað telst vinna í hæð og hvenær áhættumat þarf að liggja fyrir
Forgangsröðun fallvarna: að fjarlægja hættuna, verja svæðið, og loks persónuhlífar
Val, skoðun og notkun fallvarnabúnaðar: belti, líflínur, festipunktar og fallstöðvun
Verkpallar, tröppur, stigar og lyftur: val á búnaði fyrir mismuandi verk
Öruggur aðgangur að vinnusvæði, afmörkun og frágangur
Ábyrgð og hlutverk: hvað verkstjóri þarf að tryggja og hvað hver starfsmaður þarf að kunna
Björgun og viðbrögð þegar fall hefur átt sér stað
Kennarar HSE consulting hafa áratuga reynslu af ráðgjöf, innleiðingu og rekstri öryggismála og hafa sett upp leyfisveitingarferli og björgunaráætlanir fyrir lokuð rými hjá íslenskum fyrirtækjum í iðnaði, orkuvinnslu og framleiðslu.
Fyrir hverja
Starfsfólk sem vinnur í hæð, verkstjórar sem skipuleggja slíka vinnu og öryggistrúnaðarmenn og öryggisverðir sem þurfa að meta aðstæður á vinnusvæðum.
Verð: 49.900 kr.
No results match your search. Try removing a few filters.