Verkefnamiðuð ráðgjöf í gæða-, öryggis og umhverfismálum

Sterk fyrirtæki byggja á traustum grunni, öruggu vinnuumhverfi, gæðum sem viðskiptavinir treysta og ábyrgð gagnvart umhverfinu. Hjá HSE Consulting hjálpum við fyrirtækjum að byggja þennan grunn með ráðgjöf sem skilar áþreifanlegum árangri. Í áratug höfum við innleitt stjórnkerfi og eflt öryggis- og gæðamenningu hjá fyrirtækjum í nánast öllum geirum íslensks atvinnulífs með hagnýttum aðferðum, virkri þátttöku starfsfólks og stöðugum umbótum.

Innleiðing stjórnkerfa og undirbúningur fyrir vottun

  • Gæðastjórnun — ISO 9001. Ánægðir viðskiptavinir eru afrakstur góðra ferla. Við erum sérfræðingar í ferlastjórnun og byggjum gæðastjórnun sem starfsfólk notar.

  • Öryggi og vinnuvernd — ISO 45001. Öflug öryggismenning verður ekki til af sjálfu sér. Við leiðum innleiðinguna alla leið svo öryggi verði hluti af daglegum rekstri.

  • Umhverfisstjórnun — ISO 14001. Umhverfisábyrgð er bæði skylda og tækifæri. Við byggjum upp umhverfisstjórnun sem sýnir árangurinn með trúverðugum hætti.

  • Öryggis- og fyrirtækjamenning. Við mælum stöðuna og byggjum upp menningu sem lifir í daglegum rekstri.

  • Stefnuvinna og markmiðasetning. Mælanleg markmið, skýr ábyrgð og eftirfylgni sem heldur.

  • Leiðtogaþjálfun og markþjálfun stjórnenda. Sterkari stjórnendur í stjórnun, samskiptum og góðu fordæmi.

  • Öryggisúttektir og stöðumat. Hvar standið þið í raun? Úttekt og forgangsraðuð aðgerðaáætlun.

Við bjóðum öryggs- og gæðastjóra til leigu

Nánar hér.

Á milli stjórnunar og
framfara liggja
ferlar