Lærum allt um stýringu öryggis á vinnustaðnum. Hvernig er uppbyggingu öryggisstjórnkerfa, ábyrgð og hlutverk, mælingar og stöðugar umbætur háttað, meðal annars gagnvart ISO 45001?
Hvernig hönnum við einfalt en skilvirkt stjórnkerfi sem styður við starfsemina, stjórnendur og starfsfólk, skilar árangri og skapar ekki óþarfa vinnu?
Hvernig nýtum við gervigreindina og sjálfvirknivæðum öryggisstjórnkerfin. Hvernig getur samþætting stjórnkerfa hjálpað til í rekstrinum og einfaldað yfirbygginguna?
Farið verður yfir þroskuð stjórnkerfi og raunveruleg dæmi úr verkefnabanka HSE Consulting og lærum af hverju öðru í lifandi umræðum.
Verð: 99.900 kr.
Hvað er gæðastjórnkerfi í raun? Hvernig eru ISO staðlar byggðir upp og hvað þarf til að innleiðing skili árangri í rekstri. Hvernig hönnum við einfalt en skilvirkt stjórnkerfi sem styður við starfsemina, stjórnendur og starfsfólk, skilar árangri og skapar ekki óþarfa vinnu? Hvernig nýtum við gervigreindina og sjálfvirknvæðum gæðakerfin okkar.
Lærum af hverju öðru og notum raunveruleg dæmi úr gagnabanka HSE Consulting, allt með því markmiði að ná framúrskarandi árangri í öryggismálum.
Verð: 99.900 kr.
Hvernig stýrum við hættum á vinnustaðnum?
Á námskeiðinu er farið yfir kröfur sem gerðar eru til vinnustaða, stjórnenda, verkstjóra og starfsfólks og uppbygging og hugmyndafræði áhættumats útskýrð. Þátttakendur fá þjálfun í að greina hættur í vinnuumhverfinu og framkvæma áhættumat frá greiningu hættu til aðgerða og eftirfylgni.
Farið verður yfir uppbyggingu og hugmyndafærði öryggismata, hvað ber að varast og hvernig tryggjum við góð gæði þannig að öryggismenningin njóti góðs af.
Lærum af hverju öðru og notum raunveruleg dæmi úr gagnabanka HSE Consulting, allt með því markmiði að ná framúrskarandi árangri í öryggismálum.
Verð: 99.900 kr.
Hvernig komumst við að raunverulegri orsökum atviks? Hver er tilgangurinn og hvað lærum við af þeim? Þátttakendur læra um þekktar aðferðir við rótargreiningu og æfa sig á raunverulegum dæmum úr gagnabanka HSE Consulting.
Farið yfir hvaða aðferðir eru viðeigandi, takmarkanir þeirra og kosti. Lærum af hverju öðru og notum raunveruleg dæmi úr gagnabanka HSE Consulting, allt með því markmiði að ná framúrskarandi árangri í öryggismálum.
Á námskeiðinu er farið yfir
Hvaða atvik og næstum-atvik á að rótargreina og hversu djúpt þarf að fara
Söfnun upplýsinga strax eftir atvik: vettvangur, viðtöl, gögn og tímalína
Aðferðir: 5 x hvers vegna, orsakahríslun og fiskbeinagreining
Lykilatriði í viðtölum og þannig að fólk treysti sér til að segja frá því raunverulega gerðist
Frá rót til aðgerðar: hvernig veljum við aðgerðir sem hafa raunveruleg áhrif til bætingar
Eftirfylgni og staðfesting á að aðgerðin hafi virkað
Skráning, samskipti og hvernig lærdómur er kynntur starfsfólki
Kennarar HSE consulting hafa áratuga reynslu af ráðgjöf, innleiðingu og rekstri öryggismála og hafa stýrt rótargreiningum á alvarlegum atvikum hjá íslenskum fyrirtækjum og fylgt aðgerðunum eftir.
Fyrir hverja
Öryggisstjórar, gæðastjórar, verkstjórar, öryggistrúnaðarmenn og þau sem bera ábyrgð á rannsókn atvika.
Í lok námskeiðs er lögð fyrir könnun sem staðfestir að þátttakendur geti beitt aðferðunum sjálfstætt.
Verð: 99.900 kr.
No results match your search. Try removing a few filters.