
Áskrift að sérfræðingum
Of lítið fyrirtæki fyrir eigin gæða-, öryggis- og umhverfisstjóra? Of mikið að gera fyrir úttektir? Við sjáum um það.
Áskriftin hentar þér ef þú þarft allt að 16 klukkustundir á mánuði í ráðgjöf. Ef þú þarft meira en 16 klukkustundir á mánuði eða aðra þjónustu, t.d. þjálfun, verkefnastjórnun, breytingastjórnun o.s.frv. þá hentar leiga á gæða- og/eða öryggisstjóra þér betur.
*Ef óskað er eftir fundi á staðnum er greitt akstursgjald. Aksturstími dregst frá umsömdum tíma.
Leyfðu okkur að hjálpa, sparaðu tíma og fyrirhöfn
Áskrift
Markmið áskriftaleiðarinnar er að létta undir hjá gæða- og öryggisstjórum í litlum til meðalstórum fyrirtækjum. Notaðu tímann eins og þér hentar og fáðu stuðning til að tryggja gæði vöru og þjónustu, bæta frammistöðu, draga úr áhættu og fækka frávikum og óvæntum atvikum í þínu fyrirtæki.
Með reynslu í mörgum atvinnugreinum, fjölbreyttum gæðakerfum og stafrænni þekkingu gerum við gæða-, öryggis og umhverfismál einfaldari. Það er okkar markmið að leysa áskoranir á skemmtilegan og einfaldan hátt.
Við bjóðum einnig uppá gæðastjóra og öryggisstjóra til leigu
Hjá okkur starfa reynslumiklir sérfræðingar í gæða- og öryggismálum sem fyrirtæki geta fengið sem sína starfsmenn í skemmri eða lengri tíma. Við tryggjum góða yfirsýn með þekktum kostnaði og útbúum einfaldan þjónustusamning sem aðlagaður er að þínum þörfum.
-
2-16 tímar á mánuði
Hvernig virkar þetta?
Hafðu samband hér, láttu okkur vita hvað þú vilt marga tíma á mánuði og hvernig þú sérð fyrir þér að nýta áskriftina
Við finnum ráðgjafa sem hentar þínum rekstri, sem hefur svo samband við þig til að bóka fyrsta tímann
Dæmi um verkefni í áskrift:
Ráðgjöf varðandi einföldun gæða- og öryggishandbókar
Ráðgjöf varðandi lög og reglugerðir
Yfirferð og sannprófun áhættumats og hættugreininga (HACCP / Gámes)
Yfirferð og sannprófun ferla og flæðirita
Yfirferð umbúðamerkinga
Framkvæmd innra eftirlits
Undirbúningur fyrir úttektir (innri/ytri) í gæða- og öryggismálum
Þáttaka í gæðaráði (HACCP teymi) og öryggisnefnd
Undirbúningur fyrir rýni gæðakerfisins / stjórnenda / öryggisnefndar
Aðstoð við úrbótaáætlanir og rótargreiningu
Öryggisúttektir og ráðgjöf tengd öryggismálum
Greining á öryggis- og matvælaöryggismenningu, ráðgjöf varðandi umbætur
-
Meira en 16 tímar á mánuði
Hvernig virkar þetta?
Hafðu samband hér, láttu okkur vita hvaða verkefni þarf að vinna
Við bókum fund með þér og ráðgjafa sem hentar þínum rekstri og saman setjum við upp tilboð
Við hjálpum þér að meta tímann sem verkefnin gætu tekið
Við sendum þér tilboðið
Þú samþykkir tilboðið
Dæmi um verkefni gæðastjóra til leigu:
Gerð, einföldun og/eða viðhald gæðahandbókar
Gerð kröfulista og mat á hlítingu laga ásamt ráðgjöf varðandi lög og reglugerðir
Innri og ytri málefni og hagaðilagreining
Framkvæmd áhættumats
Framkvæmd, sannprófun og gilding hættugreininga og ferla (HACCP/Gámes)
Útreikningar á næringarinnihaldi, gerð innihaldslýsinga og yfirferð umbúðamerkinga
Framkvæmd innra eftirlits, rótargreining frávika, gerð úrbótaáætlana, umbótaverkefni o.s.frv
Undirbúningur og þáttaka í úttektum (innri/ytri), ásamt utanumhaldi og skipulagi á innri úttektum
Þáttaka í gæðaráði / HACCP teymi
Undirbúningur og þáttaka í rýni gæðakerfis/stjórnenda
Breytingastjórnun, verkefnastjórnun, stefnumótun
Þjálfun og fræðsla stjórnenda og starfsfólks
Greining og umbætur á matvælaöryggismenningu
-
Meira en 16 tímar á mánuði
Hvernig virkar þetta?
Hafðu samband hér, láttu okkur vita hvaða verkefni þarf að vinna
Við bókum fund með þér og ráðgjafa sem hentar þínum rekstri og saman setjum við upp tilboð
Við hjálpum þér að meta tímann sem verkefnin gætu tekið
Við sendum þér tilboðið
Þú samþykkir tilboðið
Dæmi um verkefni öryggisstjóra til leigu:
Gerð, einföldun og/eða viðhald öryggishandbókar og viðbragðsáætlana
Mat á lagalegum kröfum m.t.t. öryggismála
Framkvæmd áhættumats
Uppsetning á öryggisreglum og leiðbeiningum
Undirbúningur og þáttaka í stöðuúttektum og innri úttektum, ásamt utanumhaldi og skipulagi á innri úttektum
Undirbúningur og þáttaka í rýni á frammistöðu
Verkleyfi og verktakastjórnun
Þáttaka í öryggisnefnd og öryggisþjálfun
Breytingastjórnun, úrbætur og stefnumótum
Birgjamat og innkaupastýring
Atvikastjórnun og rótargreiningar
Árangursmat og markmiðasetning
Greining og umbætur á öryggismenningu